Vafraðu um
Tenglar
|
Saga sundráðs AustraSundráð Austra skipuleggur starf sunddeildarinnar og leggur línurnar varðandi þjálfun og mótshald. Sundráðið er kosið á deildarfundi sem haldinn er í maí eða júní ár hvert. Á deildarfundi þann 18. júní 2009 var kosin sú stjórn sem nú fer með málefni deildarinnar en breytingar urðu þá gerðar á stjórn.
Sundráð Austra er nú skipað fimm aðilum sem fara með stjórn sunddeildarinnar.
Formaður er Gunnar Jónsson
Gjaldkeri er Daníel Arason
Meðstjórnendur eru Elínborg Þorvaldsdóttir og Svava Sveinbjörnsdóttir
Yfirþjálfari er Garðar Eðvald Garðarsson. Þjálfari sumarsins er Guðný Ósk Gunnarsdóttir GSM 845 3884
Á fundi sunddeildarinnar 18. júní 2009 var ákveðið að foreldrar skiptu með sér störfum og verkefnum yrði deilt á þrjá hópa.
Þessir hópar eru stjórn til stuðnings í verkefnum sem sunddeildin vinnur að. Foreldrar eru því virkir þátttakendur í starfi deildarinnar því margar hendur vinna létt verk.
Verkefnahóparnir eru þrír:
Fjáröflun - vinna með gjaldkera í friðarkertasölu, pulsusölu á sjómannadag, maraþonfjáröflun, áheita- og styrkjasöfnun og fleiri tekjuöflunum
Viðburðir - aðstoða stjórn við að skipuleggja og hafa viðburði fyrir krakka utan skipulagðra æfinga eins og sundslútt, sleep over, DVD kvöld, kvöldvökur ofl.
Mótastarf - aðstoða stjórn við að skipuleggja og halda sundmót, aðrar keppnir, samæfingar og ferðir.
Sunddeild Austra var endurvakin 1989 eftir nokkurt hlé og var aðal hvatamaður að því að koma henni í gang Andrés Elísson. Starfsemi hennar hefur verið óslitin síðan þá en starfsemi hennar var aðallega á sumarin fram til ársins 2006 en þá er ný 25 metra útisundlaug tekin í notkun. Gamla laugin var 12,5 metrar og var í notkun þann hluta úr ári sem ekki var íþróttakennsla og gólf á salnum í íþróttahúsinu.

Starfsemi deildarinnar hefur aðallega snúist um aldursflokkaþjálfun frá 8 ára aldri og upp að meistaraflokki. Þá stendur deildin fyrir sundnámskeiðum fyrir 6 og 7 ára á sumrin. Hefur árangur deildarinnar verið ágætur og síðustu ár hefur deildin unnið bæði Austurlandsmeistaramót og sundmót Sumarhátíðar UIA. Þá hefur deildin átt sterka sundmenn í öllum aldursflokkum sem hafa náð ágætum árangri og verið mjög jafnir í sundgreinum.

Deildin hefur tekið þátt í öllum sundmótum sem haldin hafa verið á Austurlandi og eins farið á nokkur mót annarsstaðar. Auk þess hafa verið haldnar æfingabúðir þar sem áherslan hefur verið lögð á þjálfun og tækni auk þess að skemmta krökkunum með leikjum.

Árinu er skipt upp í 3 æfingatímabil, ársþriðjunga, vorönn febrúar - maí, sumarönn júní - ágúst og haustönn september - desember. Hlé eru gerð á æfingum í janúar (4 - 5 vikur) og í júlí til ágúst (3 - 4 vikur)
Sundmenn Austra síðastliðin ár eru þessir:
| 1993 |
Ingunn Eir Andrésdóttir |
| 1994 |
Þorsteinn H. Árbjörnsson |
| 1995 |
Ingunn Eir Andrésdóttir |
| 1996 |
Þorsteinn H. Árbjörnsson |
| 1997 |
Ingunn Eir Andrésdóttir |
| 1998 |
Sandra Sif Ragnarsdóttir |
| 1999 |
|
| 2000 |
Sandra Sif Ragnarsdóttir |
| 2001 |
Mekkin Einarsdóttir |
| 2002 |
Mekkin Einarsdóttir |
| 2003 |
Aldís Arna Einarsdóttir |
| 2004 |
Guðný Ósk Gunnarsdóttir |
| 2005 |
Guðný Ósk Gunnarsdóttir |
| 2006 |
Guðný Ósk Gunnarsdóttir |
| 2007 |
Brynja Gunnarsdóttir |
| 2008 |
Brynja Gunnarsdóttir |
| 2009 |
Vala Jónsdóttir |
Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 75 Gestir í gær: 32 Samtals flettingar: 297309 Samtals gestir: 63606 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 00:56:38
|