Flokkur: Knattspyrna

13.10.2007 23:58

Slútt hjá 4.flokki kk. Fjarðabyggð (Austfirðir)

Í gærkvöldi, 12. okt. héldu strákarnir í 4.fl.kk. slútt, þ.e. 4 fl. síðastliðið sumar.  Ekki sáu allir sér fært að mæta og söknuðum við þeirra.  Villi, sá sem þjálfaði þennan skemmtilega hóp, kom og var með strákunum ásamt tveimur mömmum, Beu og Böddu.  Þær sáu um að útdeila pizzum, gosi, skemmtiatriðum og leikjum með dyggri aðstoð Villa.  Strákarnir skemmtu sér rosalega vel og var þetta gott partý fyrir þá, svona upphitun fyrir Fjarðaballið sem var hér á Eskifirði.  Þökkum við Villa kærlega fyrir sumarið og að sjálfsögðu þessum frábæru strákum sem skipaði þennan flokk.

Austfirðir lentu í 3. sæti af 9 liðum á Austur-og Norðurlandi, efsta sætið nældu Þórsarar sér í og í öðru sæti urðu þeir í Völsung.  Frábær frammistaða hjá strákunum, voru 6. stigum á eftir Þór.

Myndir úr partýinu koma fljótlega ásamt nýjum myndum úr íþróttaskólanum.

Ef einhverjir luma á myndum úr leikjum s.l. sumars, hjá öllum flokkum, þætti okkur í stjórninni vænt um ef þið vilduð lána/gefa okkur eintök (á disk eða lykli) af þeim svo við getum sett þær hér inn á heimasíðuna.

                                                                                        

Kveðja
Knattspyrnuráð Austra

10.10.2007 20:24

Vitlaus æfingatafla!

Vegna misskilnings þá fór vitlaus tafla af stað til knattspyrnukrakkanna hér á Eskifirði.

Misskilningurinn liggur í því að það er bara EIN samæfing í viku, fyrir hvern flokk, ekki tvær og biðjumst við velvirðingar á þessum mistökum

Æfingar verða því á þriðjudögum fyrir eftirtalda flokka:
                                                    
 
                                           5.fl. kk. og kvk. kl. 16:00-17:15
                                           3. og 4. fl. kvk. kl. 17:15-18:30
                                           4. fl. kk.             kl. 18:30-19:45
Á laugardögum verða æfingar fyrir eftirtalda flokka:
                    
                                            3. fl. kk.            kl. 11:00-13:00
                                            6. og 7 fl. til skiptis. kl. 13:00-14:15

Ekki er enn komið á hreint með rútur á æfingar svo að foreldrar verða að skiptast á að keyra, þegar ekki er hægt að nýta rútur.  Ekki hefur verið gengið frá því að fullu að útvega tengla fyrir hvern flokk, svo endilega reynið að sameinast í bílana.

Engar æfingar eru næstkomandi laugardag, 13. okt. vegna móts sem verður í Höllinni.

Eftirfarandi eru þjálfarar á sameiginlegum æfingum

6. og 7. flokks æfingar: Andri Hjörvar Albertsson, aðstoð Stefán Már Guðmudsson

5. flokkur karla og kvenna: Hermann, aðstoð Páll Jóhannesson og Bergey Stefánsdóttir

4. flokkur karla: Vilberg, aðstoð Kjartan Bragi Valgeirsson

3. flokkur karla: Bergvin, aðstoð Kjartan Bragi Valgeirsson

4. flokkur kvenna: Viðar, aðstoð Kjartan Bragi Valgeirsson

3. flokkur kvenna: Viðar, aðstoð Kjartan Bragi Vagleirsson


        Það getur verið að enn eigi taflan eftir að breytast eitthvað vegna rútuferðanna og viljum við því biðja ykkur um að fylgjast vel með hérna á síðunni.  Við komum til með að hætta að mestu að senda út miða, heldur mun þessi síða koma með allar upplýsingar.

Kveðja
Knattspyrnuráð Austra

07.10.2007 13:23

Æfingatafla í Höllinni

                        Æfingatafla í Fjarðabyggðarhöllinni Kl. Laugardagur
Kl. Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur 11:00-
13:00
3. fl. kk
16:00-
17:15
5. fl. kk og kvk 5. fl. kk og kvk
13:00-
    ?
6. fl. kk og kvk
17:15-
18:30
3. og 4. fl. kvk 6. fl. kk og kvk 3. og 4. fl. kvk 7. fl. kk og kvk
6. og 7. fl til skiptis
18:30-
19:45
4. fl. kk 3. - 4. fl. kk


Jæja gott fólk, hér er æfingatafla sem gildir í Höllinni okkar á Reyðarfirði.  Við birtum hana svona en það geta orðið breytingar á henni og þá að sjálfsögðu látum við vita hérna inn á heimasíðunni.

Enn hefur ekkert frést frá Fjarðabyggð varðandi rútuferðir í sambandi við æfingarnar en það eru eitthverjar rútuferðir sem hægt væri að nýta.  Tenglar hvers flokks munu sjá um að útfæra það.

Það verða engar æfingar næstkomandi laugardag, 13. okt. vegna móts hjá framhaldsskólum og væntanlega ekki laugardaginn þar á eftir vegna móta hjá eitthverjum flokkum, það á eftir að koma betur í ljós síðar og munum við þá að sjáflsögðu setja það hér inn.

Með bestu kveðju

Knattspyrnuráð Austra

29.09.2007 14:38

Samæfingar í fótboltanum og íþróttaskólinn

Góðan daginn allir!

Nú fara samæfingar í fótbolta að byrja í Höllinni okkar aftur. Fyrirhugað er að allir flokkar komi að þessum æfingum, mismikið þó, og verða fréttir sagðar hérna inni um leið og við vitum nákvæmar tímaáætlanir.  Fylgist því með hér góðir hálsar, því hér gerast hlutirnir 

Það standa yfir viðræður við Fjarðabyggð um að koma til móts við okkur með rútuferðir á æfingar og verið er að skoða þau mál.  Líkur eru á að þeir komi að eitthverjum hluta til móts við okkur.


Í morgun var svo íþróttaskólinn fyrir yngstu krílin og eru þau alltaf jafn ánægð þessar elskur og enn bætast við krakkar, því það er svo gaman í íþróttaskólanum og er bara gaman af því hvað allir eru duglegir að mæta og vera með.  Því miður þá hafa veikindi verið að setja strik í reikningin en vonandi fara nú allir að hressast.

Í morgun tóku Valli, Halldór og Stefanía svo alla krakkana í hreyfiþroskapróf með aðstoð foreldranna.  Það er mjög mikilvægt að gera svona próf og þökkum við Valla voða vel fyrir það.

Látum þetta gott heita núna en látum fylgja með myndir af þeim Valla, Halldóri og Stefaníu.


                                                            

Stjórn knattspyrnuráðs Austra

Ps.  Endilega kommenta svo gott fólk...

16.09.2007 19:36

Nýjar myndir frá Íþróttaskólanum

Nokkrar myndir eru komnar inn í myndalbúmið frá Íþróttaskólanum frá fyrsta degi.  Ætlum svo að vera dugleg að taka myndir og henda þeim inn annað slagið

Njótið vel

Stjórn Knattspyrnuráðs Austra

15.09.2007 12:59

Fótboltaæfingar að hefjast á ný !

Jæja krakkar, ungir sem gamlir.

Þá ætlum við að byrja fótboltann aftur eftir smá frí og hefjast þær mánudaginn 17. september í íþróttahúsinu.

Svona lítur æfingataflan út núna en hún gæti breyst þegar líður á.

 Kl.           Mánud.      Þriðjud.      Miðvikud.    Fimmtud.    Föstud.   
 15-16  5.fl.kk.
+kvk
 7.flokkur  5.fl. kk.
+kvk
 7. flokkur  
 16-17  4.fl.kk.
+kvk
 6. flokkur  4.fl.kk
+kvk
 6. flokkur  
 17-18  3.fl.kk.
+kvk
   3.fl.kk
+kvk
   


Ef næg þátttaka verður hjá stelpunum þá munum við setja þær á séræfingar, verðum að sjá fyrst hvernig mætingin verður hjá þeim.

Sameiginlegar æfingar verða í vetur í Fjarðabyggðahöllinni hjá eitthverjum flokkum en enn er það ekki alveg komið á hreint hvernig eða hvenær þær æfingar verða en um leið og við vitum það þá setjum við það hér á heimasíðuna og auglýsum það.

Viljum svo minna foreldra sem enn skulda æfingagjöld fyrir janúar - maí að gera upp sem fyrst og svo er von á greiðsluseðlum fyrir sumarið nú í lok september.

Með bestu kveðjum og með von um góðan fótboltavetur.

Stjórn Knattsyrnuráðs Austra.

PS.. MUNA SVO AÐ KOMMENTA HJÁ OKKUR

15.09.2007 12:46

Leikjanámskeiðið gekk vel !

Leikjanámskeiðið fór aldeilis vel af stað og viljum við þakka öllum sem komu í dag, bæði börnum og foreldrum fyrir skemmtilegan dag.

Þar sem börnin urðu mikið fleiri en við reiknuðum með höfum við ákveðið að skipta hópnum í tvennt, 3-4 ára verða þá frá kl. 10.30 - 11.30 og 5-6 ára verða frá 11.30 - 12.30. 
Það mættu 32 krakkar í dag og það er alltof mikið af hafa alla þessa hressu og duglegu krakka saman og því var ákveðið að skipta þessu.  Vonandi veldur það engum vandræðum hjá ykkur foreldrar

Aðstoðarmenn Valla í vetur verða þau Stefanía og Halldór en þau eru bæði í íþróttaráði skólans og miklir fótboltakrakkar

Endilega að kommenta gott fólk sem kíkir hérna inn, við erum að vinna í því að virkja síðuna okkar og okkur í stjórn knattspyrnuráðs þætti vænt um að vita hvernig ykkur líkar síðan, hvað má bæta og hvað er gott á þessari síðu.

Kveðja
Stjórn knattspyrnuráðs Austra

11.09.2007 21:27

Meiri fréttir af leikjanámskeiði

Íþróttanámskeið Austra

Námskeiðið er frá kl. 10.30-12.00 á laugardögum í Íþrótta- húsinu á Eskifirði og byrjar 15. September n.k. Skráning fer fram á staðnum og greitt við skráningu.

Námskeiðið er ætlað fyrir 3 - 6 ára börn, fædd 2001-2004


Þetta er 10. vikna námskeið og verðið er 5.000 kr.

Námskeiðið byggist upp á leikjum og tækjahring og nemendur taka hreyfiþroskapróf í byrjun og lok námskeiðs.

Námskeiðið byggist upp á að þjálfa hreyfifærni, auka leikjaskilning og auka félagsfærni. Hver tími skiptist í tvennt. Leikir fyrri hlutann og seinni hlutann er farið í tækjahring.

Kennari verður Jóhann Valgeir Davíðsson Íþróttakennari.

                                                            
                                                                
                                                                       

                                         Verið velkomin og njótið vel.

                                         Stjórn knattspyrnudeildar Austra.

06.09.2007 22:33

Leikjanámskeið

Leikjanámskeið hefst laugardaginn 15 sept. 2007 frá kl. 10-12 í Íþróttahúsinu á Esk.

Þetta námskeið er fyrir krakka fædda 2001-2004.  ( 3-6 ára)

Leiðbeinandi verður Valgeir Davíðsson.

Gjaldið er 5.000 fyrir námskeiðið og skráning á staðnum.

Bestu kveðjur og njótið vel.

Stjórn knattspyrnudeildar Austra.

14.08.2007 08:47

Húsasmiðjumót 2007

Komnar eru inn myndir frá Húsasmiðjumótinu sem haldið var á Egilsstöðum þann 8. júlí síðastliðinn.

30.07.2007 19:36

Króksmót 2007

Króksmótið verður haldið á Sauðárkróki helgina 10. - 12. ágúst næstkomandi.

Eins og fyrri ár verða lið sameiginleg með Leikni og Val í 6. og 7 flokk. Foreldrar eru beðnir um að skrá krakkana sína hjá Bryndísi í síma 868-1724 eða á netfangið bryndis.sig@simnet.is fyrir helgina.

Þátttökugjald er  6.500.- á hvern krakka og greiðir Austri helming á móti.
Frekari upplýsingar um mótið er hægt að nálgast á heimasíðu þeirra.
Slóðin er http://www.skagafjordur.com/kroksmot/index.php?pid=168

01.07.2007 23:45

Húsasmiðjumót 7. flokks

Húsasmiðjumótið verður haldið næstkomandi sunnudag 8. júlí á Egilsstöðum. Mótið hefst klukkan 12:00 og mun standa til ca. 16:00. Foreldrar barna sem ætla að taka þátt eru beðin um að láta Hermann þjálfara vita fyrir miðvikudaginn 4. júlí. Að þessu sinni ætlum við að fara sem Austri en ekki sameiginlega með öðrum liðum.

14.06.2007 14:06

Frestun á Húsasmiðjumóti 7. flokks

Húsasmiðjumóti 7.flokks sem halda átti á Egilsstöðum hefur verið frestað til 8. júlí.

Þetta er vegna þess að mörg önnur mót skarast við þetta. Þeir reikna með að tímasetning sé ca. frá 13:00 - 17:00 en það á eftir að koma betur í ljós. Nánari upplýsingar koma inn hér þegar nær dregur.

10.06.2007 11:46

Sumarfrí í knattspyrnunni

Þá er fótboltinn að fara á fullt en um leið og hann fer í gang hefjast einnig sumarfrí. Fínt væri þess vegna að láta Hermann þjálfara vita í síma 845-7273 ef krakkar eru að fara í frí útúr bænum. Erfitt er að ákveða æfingar ef hann veit ekki hvað margir krakkar koma til með að mæta.

06.06.2007 21:32

Sumaræfingar knattspyrnudeildar

Nú eru hafnar sumaræfingar hjá knattspyrnudeild Austra.
Æfingar eru á gervigrasvellinum hjá grunnskólanum.

 

 Mánudagur

 Þriðudagur

Miðvikudagur 

Fimmtudagur 

 10:00 - 11:00  7. flokkur kk/kvk  7. flokkur kk/kvk  7. flokkur kk/kvk  7. flokkur kk/kvk
 11:00 - 12:00  6. flokkur kk/kvk  6. flokkur kk/kvk  6. flokkur kk/kvk  6. flokkur kk/kvk
 12:00 - 13:00  5. flokkur kk/kvk  5. flokkur kk/kvk  5. flokkur kk/kvk  5. flokkur kk/kvk
 13:00 -  4. flokkur kk/kvk  4. flokkur kk/kvk  4. flokkur kk/kvk  4. flokkur kk/kvk

Til að byrja með verða sameiginlegar æfingar hjá stelpum og strákum í 4. og 5. flokki.

Þjálfari er Hermann, sími: 845-7273.

Á æfingarplani sem krakkarnir hafa fengið heim eru upplýsingar um sameiginlegar æfingar með Leikni og Val.

kv.
Bryndís
Flettingar í dag: 22
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 66
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 310066
Samtals gestir: 66339
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 08:10:39

Tenglar

Ungmennafélagið Austri      Strandgötu 41    735 Eskifjörður   kt. 121212-1212  rnr 1111-11-1111111