Vafraðu umTenglar |
Flokkur: Knattspyrna24.02.2009 19:32Goðamót 5. fl.karla næstu helgiUm næstu helgi, 27 febrúar til 1 mars fer fram Goðamót Þórs í 5 flokki karla á Akureyri. Fjarðabyggð/Leiknir senda lið á leikana og verða þau þrjú liðin héðan, A, B og D lið. Föstudagur12:00 Móttaka liða í Glerárskóla 14:00 Leikir hefjast 18:30-20.30 Matur 22:30 Fararstjórafundur Laugardagur 07:00-09:00 Morgunmatur 08:00 Leikir hefjast 11:30-13:30 Grillaðar samlokur og safi fyrir þátttakendur í Hamri. 13:00-17:00 Brynjuís, lið velja tíma sjálf 18:00-20:00 Matur 20:30-22:30 Diskótek í íþróttahúsi Glerárskóla 21:00 Fararstjórafundur Sunnudagur 07:00-09:00 Morgunmatur 08:00 Leikir hefjast 14:40 Verðlaunaafhending og mótsslit í Boganum. Goðagrill, pylsur og Coke fyrir utan Bogann að lokinni verðlaunaafhendingu. Mælst er til þess að liðin séu viðstödd verðlaunaafhendingu Leikjaplan má sjá á heimasíðu Þórs http://godamot.blog.is/blog/godamotVið óskum öllum leikmönnum Fjarðabyggðar/Leiknis góðs gengis og góðrar skemmtunar kv. Knattspyrnuráð Skrifað af Badda 05.06.2008 20:19Æfingatafla í fótbolta sumarið 2008Með fyrirvara um breytingar...
Samæfingatafla kemur fljótlega - einhverjar breytingar verða en 5 fl.kk og kvk verða áfram á þriðju-og fimmtudögum og sama á við 3 fl.kk, áfram á þriðju-föstudögum Þessi tafla gæti einnig breyst, því ennþá er verið að vinna í samæfingatöflunum, það er margt sem þarf að skoða þegar mörg félög koma að æfingunum. kv. Knattspyrnuráð Skrifað af Badda 26.05.2008 21:22Fjáröflun hjá 3 flokki kkNú næstu daga munu strákar úr 3 fl.kk Fjarðabyggð, strákarnir okkar í Austra og Þrótti ganga í hús hér á Esk og svo í Nesk og bjóða til sölu ýmsan varning - m.t.a.m. nefna Austra svuntur (ekki seldar á Nsk ) Nammipokar, Wc-pappir, eldhúsrúllur og kaffi frá Kaffitár.Strákarnir í Fjarðabyggð þurfa að keppa 5 leiki fyrir sunnan og 2 leiki fyrir norðan og því hefur kostnaður rokið upp úr öllu valdi og því erum við í fjáröflunum saman Esk og Nsk - strákarnir á Fásk eru ekki inn í þessu, þeir hafa annað í staðinn. Sunnudaginn 8 júní er svo ráðgert að halda hálft maraþon í fótbolta og munu strákarnir spila í 12 tíma og er ætlunin að reyna að fá sem flesta til að vera með, til að spila á móti strákunum - og vona ég að sem flestir sjái sér fært að vera með þegar við leitum til þeirra. Einnig munu strákarnir ganga í hús seinna og byðja um áheit vegna maraþonsins. Og já, sex strákar úr Huginn Seyðisfirði eru gengnir til liðs við 3 fl. kk Fjarðabyggð og bjóðum við þá hjartanlega velkomna í hópinn og munu þeir styrkja okkur. En þessi frjárölfun sem fer í gang á miðvikudag, þetta gengur allt til strákanna okkar í Austra og þeirra tveggja stráka í Þrótti enda verða þeir að selja með okkar strákum Með von um góðar undirtektir Badda f.h. foreldra strákanna í 3 fl. Ps. Verðum einnig með kaffisöluna á vellinum í sumar og erum við búin að vera að baka kleinur til að selja með, ekki dónalegt að fá sér kaffi og kleinur á vellinum í sumar ![]() Skrifað af Badda 17.04.2008 00:28Nýjar myndir - 4fl.kk og 6 fl.kk Goðamót 08Nýjar myndir komnar inn í albúmið. Það eru myndir frá 4 fl.kk og 6 fl. á Goðamótinu á Akureyri nú í vetur. Vegna einhverra mistaka kom albúmið þrisvar sinnum inn, tvö full af sömu myndunum og eitt þeirra tómt. En ég get ekki tekið út albúmin, svo þið skoðið bara tvö albúm, með sömu myndunum og hafið gaman af...Skrifað af Badda 13.04.2008 00:16Myndir óskast!Ritari óskar eftir myndum af fótboltakrökkunum okkar. Ég get lítið bætt í albúmið okkar ef ég fæ engar mydnir af snillingunum okkar hér. Svo endilega komið myndum til mín og ég set þær í albúmið - svo gaman að eiga nóg af myndum að skoða. kv. Badda Skrifað af Badda 05.04.2008 09:35Fjarðaálsmót - 3 og 6 fl. kk. Sunnudaginn 6 aprílTímatafla mótsins. Fjarðaálsmót 6.apríl 2008 3.flokkur karla. Leiktími 3.flokkur 1 x 35 mín. 3 leikir á lið.
Tímatafla 6.flokkur karla.
Skrifað af Badda 04.04.2008 07:33Fjarðaaálsmót 3 og 6 fl. kk. Sunnud. 6.aprílÁ sunnudaginn, 6 aðríl er fyrsta Fjarðaálsmót vetrarins. kl 10:30 hefst mót í 3. flokki karla með þátttöku fjögurra liða. Milli kl 14:00 og 15:00 hefst svo 6. flokkur drengja og þar keppa 8 lið, 4 A-lið og 4 B-lið. Nákvæmari tímasetningar koma síðar í dag Knattspyrnuráð Skrifað af Badda 28.03.2008 19:47Eggert skrifar undir áframhaldandi samning við HeartsÍ dag, 28 mars, skrifaði Eggert ,,okkar" undir nýjan samning við Hearts. Segir í frétt af Fótbolti.is eftirfarandi:
Þessi tvítugi leikmaður hefur fest sig í sessi í aðalliði Hearts á leiktíðinni og komið við sögu í 27 leikjum. Með góðri frammistöðu hefur hann einnig unnið sér sæti í íslenska landsliðinu en hann var meðal annars í leikmannahópnum gegn Slóvakíu í vikunni. ,,Ég er mjög ánægður með að hafa náð að ganga frá samningum," sagði Eggert við heimasíðu Hearts. ,,Ég ætlaði alltaf að vera áfram hjá Hearts og ég hlakka til þeirra verkefna sem eru framundan þar sem ég vil alltaf bæta mig." Þjálfari Hearts: Eggert á bjarta framtíð fyrir höndum
,,Eggert hefur staðið sig mjög vel síðan hann kom hingað,? sagði Frail og bætti við: ,,Hann er ungur að árum og á bjarta framtíð fyrir höndum. Ég er mjög ánægður með þann fjölda leikja sem hann hefur spilað og hvernig hann hefur staðið sig í þeim.? Eggert, sem er nú samningsbundinn félaginu til ársins 2012, segist ætla að halda áfram á sömu braut. ,,Það er mikil samkeppni um stöður í liðinu en ég ætla að halda áfram að læra og bæta mig.? Til hamingju með þetta Eggert ![]() 28.03.2008 18:36FjarðaálsmótinFJARÐAÁLSMÓTINÞátttökugjöld eru eftirfarandi og greiðast fyrirfram: 27.03.2008 19:58Eggert valin íþróttamaður Fjarðabyggðar 2007Í gær, 26 mars, var Eggert Gunnþór Jónsson valin íþróttamaður Fjarðabyggðar, annað árið í röð. Kjörið fór fram í Grunnskóla Stöðvafjarðar. Fimm einstaklingar voru tilnefndir til íþróttamanns Fjarðabyggðar þetta árið og eru þeir sem hér segir. Miglena Apostolova frá Þrótti fyrir blak. Magnús Karl Ásmundsson frá Val fyrir glímu. Helga Rósa Pálsdóttir frá Hestamannafélaginu Blæ í hestaíþróttum. Una Sigríður Jónsdóttir frá Leikni fyrir knattspyrnu. Eggert Gunnþór Jónsson frá Austra fyrir knattspyrnu. 23 einstaklingar fengu svo viðurkenningu fyrir landsliðverkefni. Eggert gat ekki tekið á móti viðkenningunum þar sem hann var staddur í Slóvakíu með íslenska landsliðinu í fótbolta, þar sem þeir voru að spila æfingaleik. Viljum við í knattspyrnuráði Austra óska Eggert innilega til hamingju með þetta kjör og óskum honum velfarnaðar í fótboltanum 26.03.2008 10:42Æfingar byrjaðar aftur eftir páskafríNú er fótboltinn kominn á fullt skrið - bæði hér á Eskifirði og í Höllinni á Reyðarfirði. 21.03.2008 00:29Stebbi Gísla og Eggert...Eskfirðingarnir Stefán Gíslason og Eggert Gunnþór Jónsson eru í landsliðshópi Ólafs Jóhannessonar sem mætir Slóvökum í æfingaleik 26. mars næstkomandi. Glæsilegur árangur hjá okkar strákum. Ekki eru fleiri austfirðingar í hópnum, svo við megum alveg vera montin hér á Esk, í Austra ![]() Stebbi Gísla ![]() Eggert vs Henry kv. Knattspyrnuráð Austra 17.03.2008 21:36Gleðilega páska
17.03.2008 09:49Goðamót - 6. flokkurEkki náðu 6.flokks krakkarnir neinum sætum að þessu sinni en held að sæmilega hafi gengið. Fyrir mestu að allir hafi haft gaman og skemmt sér vel. Hægt er að sjá úrslit inn á Goðamótssíðunni Úrslit leikja hjá 6 flokk og myndir er hægt að sjá hér: http://www.godamot.blog.is/album/ kv. Knattspyrnuráð Austra ![]() ![]() 14.03.2008 16:48Gömul Austramynd...segi ekki meir:)
Efri röð: Stebbi Nönnu, Pétur Ísleifsson, Árni Sæbjörn ÓlaFoss, Skúli Sveinsson, Bjarni Kristinsson, og Grétar nokkur Rögnvarsson. Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 75 Gestir í gær: 32 Samtals flettingar: 297309 Samtals gestir: 63606 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 00:56:38 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ungmennafélagið Austri Strandgötu 41 735 Eskifjörður kt. 121212-1212 rnr 1111-11-1111111