Vafraðu umTenglar |
Flokkur: Sund04.10.2010 21:45Ný stjórn sunddeildarÁ aðalfundi Sunddeildar Austra sem haldinn var mánudaginn 27. september 2010 í Austrahúsin var kosin ný stjórn fyrir Sunddeildina. Ákveðið var að fjölga í stjórninni úr 4 í 5 til að hægt væri að deila meira verkefnum á milli stjórnarmanna. Nýja stjórnin er þannig skipuð: Skrifað af Gunnar Jónsson 26.09.2010 21:38Úrslit meistaramóts aldursflokka í sundiMeistaramót UÍA (aldursflokkar) í sundi var haldið laugardag 25. og sunnudag 26. september 2010 í sundlauginni í Neskaupstað. Mótið gekk vel fyrir sig í alla staði. Sundmenn Austra stóðu sig með prýði en sérstaklega stóðu þau sig vel Nikólína Dís Kristjánsdóttir sem vann afreksbikar í 11 - 12 ára flokki meyja og Adrian Daníelsson sem vann afreksbikar í 13 - 14 ára flokki drengja. Í stigakeppninni hélt Neisti bikarnum og varðist harðri atlögu frá Þrótti en stigin í liðakeppni fóru þannig: Stig liða 1 Neisti 580 2 Þróttur 544 3 Austri 136 4 Þristur 78 Úrslitin í heild sinni er hægt að finna undir flipanum sundmót og úrslit en þar er PDF skjal. Skrifað af Gunnar Jónsson 21.09.2010 22:52Aðalfundur Sunddeildar AustraHér með boðum við til aðalfundar í Sunddeild Austra mánudaginn 27.9.2010 kl. 20:00 í Austrahúsinu (Strandgata 46). Hefðbundin fundarstörf en m.a þurfum við að ræða: 1) Fjármál deildarinnar. a) fjárhagsleg staða og niðurstaða ársreiknings 2009 b) fjáraflanir og ráðstafanir á tekjum af þeim c) æfingagjöld og innheimta þeirra 2) Skipan stjórnar. a) skipa þarf nýja stjórn en núverandi stjórnarmenn (3 af 4 hafa beðist undan endurkjöri) 3) Þjálfaramál. a) ræða þarf framhald þjálfunar og hvernig haga beri henni. 4) Skipulag og starfsemi - starfshópar a) foreldrum skipt upp í starfshópa þar sem hvert foreldri fær hlutverk í starfinu. b) viðburðir aðrir en mót. 5) Önnur mál Skrifað af Gunnar Jónsson 13.09.2010 19:05Sundþjálfara vantar til starfa sem fyrstSunddeild Austra auglýsir
eftir sundþjálfara. Komið getur til
greina að ráða tvo þjálfara eða par sem tekur að sér þjálfunina.
Æskilegt er að þjálfari
hafi einnig æfinga- eða kennsluréttindi eða tekið námskeið í sundþjálfun
en það er ekki skilyrði. Áhugasamir hafi endilega
samband við Gunnar í síma 476 1190 eða sendið tölupóst á netfangið gunnar(hjá)ts.is Skrifað af Gunnar Jónsson 16.08.2010 19:37Sundæfingar hefjast að loknu sumarleyfi !Sundæfingar að loknu sumarleyfi eru að hefjast. Fyrsta æfing verður þriðjudaginn 17. ágúst 2010 kl. 17:00 og er mæting í sundlauginni á Eskifirði tímanlega fyrir æfingatíma. Allir aldurshópar eiga að mæta kl. 17:00 Guðný Ósk Gunnarsdóttir verður með æfingarnar fram í september en verið er að leita að þjálfara til að taka æfingarnar í vetur. Nú er um að gera að mæta og fara að ná upp þoli og tækni en næsta mót er meistaramót UÍA í aldursflokkum sem haldið verður í sundlaug í Neskaupstað 24. og 25. september. Stjórnin Skrifað af Gunnar Jónsson 17.07.2010 10:58Úrslit sundmóts sumarhátíðar 2010Sundmót sumarhátíðar UÍA var haldið föstudag 9. og laugardag 10. júlí. Mótið gekk í alla staði vel og kepptu fyrir sunddeild Austra 6 keppendur að þessu sinni. Nikólína Dís Kristjánsdóttir hreppti gullið í þremur sundgreinum, baksundi, bringusundi og skriðsundi. Að auki vann hún afreksverðlaun í aldursflokkinum 11 - 12 ára með 24 stigum og hlaut bikar fyrir vikið. Í stigakeppni liða náði sunddeildin ekki langt að þessu sinni en endaði með 46 stig en stigabikarinn hlaut sunddeild Neista en mjótt var á munum milli hennar og sunddeildar Þróttar. Úrslit úr í stigakeppni liða var þessi:
Úrslit mótsins er að finna hérna: Skrifað af Gunnar Jónsson 26.06.2010 08:34Sundmót á sumarhátíð.Sundmót á sumarhátiðar UÍA Sundmót sem er hluti af fjórum sundmótum UÍA á árinu. Haldið 2. helgi í júlí ár hvert, nú föstudag 9. og laugardag 10. júlí. Sundmótið er haldið í sundlauginni á Egilsstöðum og reiknað með að það hefjist með upphitun á föstudegi 9. kl. 17:00 Skrifað af Gunnar Jónsson 21.06.2010 08:11Æfingar í sundi fram að SumarhátíðBreyting hefur verið gerð á æfingartímum í sundinu. Undanfarið hafa æfingar verið á óreglulegum tímum en því er nú breytt þannig að þær eru alltaf á sama tíma. Sumarhátíðin nálgast og verður haldin helgina 10. og 11 júlí n.k. Við þurfum að koma á reglubundnum æfingum fram að þeim tíma og vil ég biðja ykkur um að hvetja krakkana til að mæta næstu vikur því sundmót sumarhátíðar er einn af höfuðviðburðum í sundstarfinu hjá okkur. Æfing verður á morgun þriðjudag 22.6.2010 og allir aldursflokkar eiga að mæta kl. 17:00 í sundlauginni. Æfingar í sundinu verða fram að sumarhátíð sem hér segir: Æfingahlé verði frá 12. júlí - 13. ágúst. Farið verður af stað með æfingar á fullu þá en stefnt er á meistaramót 24. september. Skrifað af Gunnar Jónsson 10.03.2010 20:27Sundæfingar vor 2010Búið er að setja upp æfingaplan fyrir sundið fram á vorið. Skrifað af Gunnar Jónsson 25.02.2010 20:29Nýr sundþjálfari ráðinn til starfaÍ dag var gengið frá ráðningu á nýjum sundþjálfara til starfa hjá Sunddeild Austra. Sundþjálfarinn heitir Kjartan Hrafnkelsson og hefur hann bæði æft og þjálfað sund í mörg ár. Hefur hann verið hluti af landsliðshóp Sundsambands Íslands og á mörg afrek í sundíþróttinni. Skrifað af Gunnar Jónsson 17.02.2010 22:13Sundþjálfara vantar til starfaSunddeild Austra auglýsir eftir sundþjálfara til starfa. Við leitum eftir áhugasömum einstaklingi til að taka að sér sundþjálfun aldursflokka barna. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af sundþjálfun og keppni. Æskilegt er að þjálfari hafi einnig æfinga- eða kennsluréttindi eða tekið námskeið í sundþjálfun en það er ekki skilyrði. Viðkomandi þarf að vera lipur í samskiptum við ungmenni og hafa gaman af því að starfa með hressum krökkum og ná að laða það besta fram í þeim. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst en ráðið er í starfið tímabundið fram að mánaðarmótum maí - júní 2010. Á milli 20 og 30 börn og ungmenni hafa stundað sund undanfarin misseri á aldrinum frá 8 ára til 15 ára. Æfingar hafa verið þrisvar í viku, mislangar eftir aldursflokkum. Á tímabilinu fram að 1.6. er áætlað að tekið verði þátt í tveimur mótum og fyrirhugaðar eru æfingabúðir með öllum sunddeildum í lok febrúar. Áhugasamir hafi endilega samband við Gunnar í síma 476 1190 eða sendið tölupóst á netfangið gunnar(hjá)ts.is Stjórn sunddeildarinnar Skrifað af Gunnar Jónsson 10.12.2009 22:07Uppskeruhátíð sunddeildarinnar 2009Sunddeild Austra hélt sína árlegu uppskeruhátíð þriðjudaginn var. 8. desember í Austrahúsinu. Á hófið mættu á sjötta tug foreldra og barna en á æfingar hafa mætt reglubundið um 25 krakkar auk þess sem þrír meðlimir deildarinnar æfa í vetur með Óðni á Akureyri. Á hófinu var boðið uppá pizzuveislu meðan farið var yfir viðburði ársins sem er að líða, veitt verðlaun og viðurkenningar en allir þeir sem skráðir eru á æfingar fengu gjafakort fyrir kaupum á sundgleraugum hjá Veiðiflugunni á Reyðarfirði. Þá var myndasýning þar sem myndir af viðburðum í sundinum voru sýndar. Sundmaður Austra þetta árið var valin Vala Jónsdóttir en hún er mjög efnilegur sundmaður sem hefur sópað til sín verðlaunum á þessu ári. Sem dæmi má nefna að hún sigraði í öllum greinum sem hún keppti í á liðnu bikarmóti sem var að Djúpavogi auk þess sem hún er lykilmaður í boðsundsgreinunum þar sem hún leggur mikin metnað í að boðsundsveitir Austra sigri og hvetur og herðir sitt lið upp. Vala hefur í gegnum sinn feril verið á verðlaunapöllum mjög oft og þar ræður bæði mikill keppnisandi og góð tækni sem skilar þeim árangri sem hún er vel að komin. Viðurkenningar fyrir bestu mætingu í a-hóp fékk Jensína Martha Ingvarsdóttir, í b-hóp Nikólína Dís Kristjánsdóttir og í c-hóp Jóhanna Gabriela Lecka. Þá fengu Jensína Martha Ingvarsdóttir, Nikólína Dís Kristjánsdóttir og Guðni Geir Agnarsson viðurkenningar fyrir mestu framför á árinu. Heilt yfir var starf sunddeildarinnar mjög gott á árinu og liðið tók þátt í þremur sundmótum. Árangur á mótum var upp og ofan en þátttaka mjög góð og góður andi hjá sunddeildinni. Myndasýning er að finna á vefnum frá uppskeruhátíðinn. Skrifað af Gunnar Jónsson 01.12.2009 18:41Sundmót á DjúpavogiBikarmóti á Djúpavogi fór fram laugardaginn 21.11.2009. Mótið var í stærra lagi miðað við mót okkar hérna fyrir austan en keppendur voru frá 6 félögum og þáttaka almennt góð. Sundliðin undirbjuggu sig vel fyrir mótið og var ágæt keppni milli liða. Mótið er bikarmót þar sem keppt er um Austurlandsbikarinn þar sem liðið skiptir öllu máli. Verðlaun voru veitt fyrir stigahæsta liðið og það sem varð í næsta sæti. Þá voru veitt verðulaun í formi bikars fyrir stigahæsta karla- og kvennalið. Lið Austra reið ekki feitum gelti frá mótinu að þessu sinni en úrslitin urðu þannig að Sunddeild Neista varð í fyrsta sæti með 337 stig og í öðru sæti Sunddeild Leiknis með 159 stig. Austri var í 5. sæti með 121 stig. Stigahæsta karlaliðið kom frá Neista en stigahæsta kvennalið kom frá Leikni. Nánar er hægt að sjá um úrslit mótsins undir flipanum "sundmót og úrslit". Skrifað af Gunnar Jónsson 23.09.2009 22:02Meistaramót Austurlands í sundi aldursflokkum lokiðMeistaramót aldursflokka í sundi var haldið í sundlaug Eskifjarðar um helgina 19. og 20. september s.l.. Keppendur voru frá öllum sunddeildum á Austurlandi og voru keppendur 43 sem kepptu í 44 greinum. Var mikil keppni milli liða í boðsundum að venju og var hörð keppni en þar beittu liðin sér sem mest þau gátu enda hápunktur mótahaldsins. Í liðakeppni var Sunddeild Neista hlutskörpust með 360 stig en stigi liða skiptust þannig:
Keppnishald gekk mjög vel fyrir sig en mótið stóð í tvo daga og var haldið að morgni laugardags og sunnudags og var samvinna sunddeilda um mótið mjög góð. Úrslit mótsins er að finna hér í viðhengi. Skrifað af Gunnar Jónsson
Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 75 Gestir í gær: 32 Samtals flettingar: 297309 Samtals gestir: 63606 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 00:56:38 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ungmennafélagið Austri Strandgötu 41 735 Eskifjörður kt. 121212-1212 rnr 1111-11-1111111